22.11.09
Rúnutal
18.10.09
Tær í kremju
Ekki gat ég stillt mig um að smella á fyrirsögnina Naomi Cambell á bikiní - myndir. Fréttin er sú að Naomi sé enn í "feyknaformi" en blaðamaður virðist ekki hafa veitt því athygli sem er mun meiri frétt.
4.10.09
Uppskrift
Tregða mín til að henda hlutum eða losa mig við þá til annarra eigenda á sér margar birtingarmyndir. Ég lærði það ung að mikilvægt væri öllum að eiga gott hljómplötusafn. Sérstaklega var það mikilvægt fyrir unga menn og hélst í hendur við mikilvægi þess að eiga góðar græjur. Metnaður minn í þessum efnum var lítill, sem betur fer. Allar mínar græjur hafa verið vondar og hljómplötur keypti ég stöku sinnum af tilviljun. Núna á ég ekki það sem þarf til að spila hljómplötur en ég get hvorki selt þær, gefið, hent né neitt annað. Þær bara sitja í sínum kassa í geymslunni og bíða eilífðarinnar.
Fljótlegt reyndist að framkvæma uppskrift á hljómplötusafni mínu. Ef einhver sýnir áhuga á að eignast einhverja þeirra, geri ég ráð fyrir að mér muni þykja hún enn eigulegri fyrir vikið.
Hvít jól – Elly Vilhjálms og Ragnar Bjarnason (þetta er lítil plata), Hotter than July – Stevie Wonder, Pyramid – The Alan Parsons Project, Jack Magnet – Jakob Magnússon, In The Court of The Crimson King – King Crimson, Double Fantasy – John Lennon og Yoko Ono, Walk on The Wild Side - The best of Lou Reed – Lou Reed, Peter Tschaikowski - Die Jahreszeiten - Auswahl – Swjatoslaw Richter, Og augun opnast – Hilmar Oddsson, Eve – The Alan Parsons Project, Master of Reality – Black Sabbath, Tender Prey – Nick Cave and The Bad Seeds, Countdown to Ecstasy – Steely Dan, Bounced Checks – Tom Waits, Arien – Maria Callas, Midt om Natten – Kim Larsen, Kaya – Bob Marley and The Wailers, Never for Ever – Kate Bush, Absolutely Live – The Doors, The Best of Bette – Bette Midler, 77 – Talking Heads, 461 Ocean Bouleward – Eric Clapton, Starsound Collection – Janis Joplin, Body and Soul – Joe Jackson, Stella – Yello, Eye in The Sky – The Alan Parsons Project, The Doors –The Doors, Blind Faith – Blind Faith, Bísar í banastuði – Kamarorghestar.
Mér finnst endilega eins og ég hafi einhverntíman átt plötur með Supertramp og ELO, en sennilega eru þær týndar eða í láni.
15.8.09
Innköllun
Í tilefni ágreinings innan Borgarahreyfingarinnar er því beint til þingmanns að "kalla inn varaþingmann sinn". Þingmaðurinn segist ekki ætla að gera það. Fjölmiðlar færa fréttir af því hverjir vilja að þingmaðurinn "kalli inn varaþingmann sinn" og hverjir vilja það látið ógert.
Samkvæmt 53. gr. laga um þingsköp er þetta aðeins öðruvísi hugsað:
Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um fyrirspurnafundi.Borgarahreyfingin virðist óvart hafa ýtt á rauða hnappinn "self destruct".
Ef þingmaður forfallast svo að nauðsyn krefji að varamaður hans taki sæti hans á meðan skal hann tilkynna forseta það bréflega og jafnframt gera grein fyrir í hverju forföllin eru fólgin og hversu lengi þau muni vara. Forseti kynnir þinginu bréfið.Þegar varamaður tekur sæti í forföllum þingmanns skal hann ekki sitja skemur en tvær vikur nema þingið hafi áður verið rofið eða því frestað.Þingmaður nýtur ekki þingfararkaups meðan varamaður hans situr á þingi nema fjarvist sé vegna veikinda eða þingmaður sé fjarverandi í opinberum erindum.
11.7.09
Staup
Áhugi minn á jarðargróðri er ekki takmarkaður við blóm, en því miður sækist mér illa að læra nöfn á mosum, sveppum, fléttum og þvílíku. Svona jurtir, ef jurtir má kalla, eru oft einstaklega listrænar í útliti og hljóta að veita hönnuðum innblástur. Þetta minnir aðeins á staup sem kona með rauðan varalit hefur drukkið úr.
Þetta fann hún Ásý frænka mín um daginn og spurningin er hvort einhver glöggur lesandi ber kennsl á gripina. Ætli þetta sé ekki svona einn og hálfur cm á hæð.
6.7.09
Tapað - fundið
Wikipedia segir af einni Véborgu. Hún var ein þriggja skjaldmeyja sem fóru fyrir liði 300 slíkra í her Haraldar hilditannar í gríðarlegum bardaga við Brávelli í Svíþjóð í kringum árið 750 eftir því sem sagt er. Því er logið að 200 000 manns hafi tekið þátt í bardaganum. Véborg féll í orrustunni, fyrir Þorkeli hinum þrjóska og er frá því greint að orðaskak hafi fylgt vopnaskaki þeirra.
Véborg þessi hefur því tæpast átt snúðinn sem er frá 10. eða 11. öld, en eigandi hans gæti alveg hafa verið látinn heita eftir þessari frægu kvenhetju. Það er svo ráðgáta afhverju notkun á þessu prýðilega nafni hefur lagst af, fundur snúðsins verður vonandi til þess að nýjar Véborgir vaxi úr grasi. Ekki veitir okkur af kjaftforum skjaldmeyjum.
5.7.09
Myndarlegir
Ég hef veitt því athygli að allar fréttir á mbl.is af starfsemi lögreglunnar eru myndskreyttar með einni og sömu myndinni. Það er mynd af húddi á lögreglubíl. Fín mynd en ég óska eftir tilbreytingu. Þessa mynd tók ég á17. júní og hún væri oft alveg upplögð.
Í boði Landsvirkjunar
Um daginn naut ég gestrisni Landsvirkjunar og fékk að skoða Kárahnjúkavirkjun með leiðsögn starfsmanna fyrirtækisins. Sama hvað manni kann að finnast um framkvæmdina, þá má dást að mikilfengleika mannvirkisins, handverkinu, verksvitinu og því sem menn geta áorkað ef nógu margir leggja saman.
Eitt mikið áhyggjuefni er fok. Hér má sjá viðleitni til að hindra það. Ég geri ráð fyrir að þetta sé einhverskonar tilraun því aðeins var eitt svona tæki að störfum. Þetta tæki minnir mig á þegar rófugarðarnir voru vökvaðir í gamla daga. Bunan sveif í svipuðum boga.
Annars eru myndir úr þessari frægðarför hér.
20.5.09
Íðorð
Á öðrum staðnum lenti ég inn á áhugaverðum spjallþræði:
-Ég er að fara að taka upp gamlan 350 chevy mótor og langaði að athuga hvort menn gætu ekki bent mér á eitthvað almennilegt setup. Það sem ég get verslað hér á klakanum mun ég versla hér, en annað mun ég panta að utan. Markmiðið er að komast hátt í 300 hrossin og jafnvel eitthvað yfir.
-Ef þú ert með original vél með lélegum heddum, úrbrædda og dasaða þá myndi ég allavega skoða að kaupa þetta tilbúið að utan frekar en að gera þetta upp hérna heima þegar NÝ 330 hp vél kostar frá 2400 $ á Summit.
-Þetta veltur allt á því hvernig vélin er á sig komin ef það þarf að bora blokkina renna sveifarásinn ofl þá er það svo fjandi dýrt en samt 2400$ mótor hjá summit fer vel yfir 300þús kr hingað kominn svo það má nú eyða aðeins í þetta.Þú getur væntanlega sloppið með borðaða blokk,rendann sveifarás og nýjar ventlastýringar fyrir um 100þús kr.
-Er ekki málið að fá sér þrykkta stimpla?
-Það fer allt eftir því hvert er takmarkið?? Keppnis,steet/strip eða götubíll.
-Þú ert best settur með hypereutectic stimpla eins og t.d keith black þá geturðu verið með þéttari clearance heldur en með þrykktum. Nema þú ætlir að gasa þetta til helvítis.
-Planið er að ná 300 gæðingum úr fjósinu og eiga samt nóg inni fyrir SC/NOS. Er semsagt verra að vera með þrykkta stimpla á kraftminni vél?
-Sælir, þrykktir stimplar eru þyngri og þá er mótorinn kominn úr ballans, sem er ekki gott, settu frekar peninginn í aftermarket álhedd og góðan knastas,og þú ferð vel yfir 300 hrossin.
15.5.09
Brennuvargur
Alltaf bað ég afa um leyfi fyrir að brenna sinu og hann veitti það með semingi. Oftast var maður að kveikja í vegköntum og skurðsruðningum. Ég var meðvituð um að það væri ábyrgðarhluti að brenna sinu, eldinum yrði að halda í skefjum og ekki mætti kveikja í hvar sem var. Ég hafði líka lesið frásögn í Öldinnni okkar af bónda sem kveikt í sinu og brenndi óvart allt land þriggja jarða nágranna sinni, og fyrirfór sér af skömm.
Ég get aldrei alveg fundið fyrir þeirri heilögu fordæmingu sem fylgir fréttaflutningi af sinubrunum.
6.5.09
Geitarhús án ullar
21.4.09
Evruland
14.4.09
Tilboð
Í dag barst mér A4 umslag þykkt af pappír frá lögmannsstofunni Logos, þar var bréf stílað á mig persónulega, margra síðna upplýsingabæklingur á fallegum pappír auk eyðublaðs sem mér gefst kostur á að fylla út í viðurvist tveggja votta, þar sem ég fellst á yfirtökutilboð í hlut minn í félaginu. Eyðublaðið útfyllt get ég sent Logosi í sérstöku svarsendingarumslagi sem einnig fylgdi.
Kaupverðið krónur núll verður lagt á reikning minn við fyrsta tækifæri.
12.4.09
Ég og dýrið
31.3.09
Hýdrófíl
Til að lýsa innihaldinu nánar er óhjákvæmilegt að grípa til engilsaxnesku. Kremin eru "decelerating, replumping, prodigious, anti-aging, resculpting, rebalancing, restorative, super-restorative, repairing, multi-active, firming, extra-firming, advanced extra-firming, contouring, correcting, age-defying, pore minimizing, thightening". Íslenskan, hin frjósama orðamóðir, stendur á gati, orðlaus.
Kreppan hefur frelsað okkur undan þessu neyslubulli, enda er algengt kílóverð í kringum eitthundraðþúsund. Nú er það Gamla apótekið sem hefur það sem þarf, á rétta verðinu. Rakakremið Hýdrófíl frá þeim er selt í 100 gramma ósmekklegri túpu og kostar í kringum sjöhundruð krónur. Alveg stórgott og ég mæli eindregið með því.
28.3.09
Hampur
Hampur (C. sativa L.). 1 - 2 m há einær jurt með stór 5 - 9 fingruð blöð. Smáblöðin mjó og sagtennt. Blómin smá, grænleit. Úr stöngultrefjunum er unninn hampur, sem hafður er í kaðla, snæri, striga o. s. frv. Jurtin er einnig ræktuð til skrauts, vegna þess hve blaðfalleg og vöxtuleg hún er. Þarf skjól. Gott er að binda hana við prik til stuðnings. Þrífst vel. Fjölgað með sáningu.Rétt að taka fram að það eru til mismunandi afbrigði af jurtinni. Sá hampur sem ræktaður er til iðnaðar inniheldur ekki vímuefnið svo neinu nemi. Hampur er ein fyrsta jurtin sem mannkynið tók í sína þjónustu, fyrir meira en tíuþúsund árum. Ræktun hennar hefur minnkað frá því mest var en núna er verið að horfa á að ræktun hennar er umhverfisvæn, það þarf lítið af skordýraeitri, illgresiseyði eða slíku. Plantan vex hratt og er ákaflega afurðamikil. Hægt er að nota hana á furðulega fjölbreyttan hátt, í byggingarefni, heilsufæði, föt, pappír, plastefni, og auðvitað reipi. Pappír unninn úr hampi þarf ekki að bleikja með klóri eins og þann sem gerður er út trjám.
Framtakssamir Íslendingar hafa reynt að rækta jurtina hér, gaman væri að vita hvort það hafi lukkast.
Hinir víðsýnu Bandaríkjamenn banna ræktun hamps til iðnaðarnota, án leyfa frá Fíkniefnaeftirlitinu. Verið er að reyna að breyta því.
23.3.09
Þegar vonin ein er eftir
Davíð segir á morgunfundi Viðskiptaráðs 18. nóvember 2008:
Þegar heim var komið var óskað eftir fundi með forustumönnum ríkisstjórnarflokkanna, fleiri ráðherrum og embættismönnum, og fékkst sá fundur. Þar var lesin upp í heild skýrsla um ferðina sem þá var til í handriti.Þar á hann við þetta minnisblað. Var virkilega látið duga að LESA UPP textann fyrir stjórnendur landsins? Var ekki tilefni til afhenda þeim eintak? Hversvegna kemur ekki fram hvaða fólk sat umrædda fundi í London? Það vekur raunar athygli að ekki ein einasta mannvera er nafngreind í skjalinu. Er þetta virkilega eina skriflega gagnið sem varð til í þessari Londonferð?
Nú segir Björgvin G. að hann hafi aldrei heyrt af þessu minnisblaði. Honum hefur ekki verið boðið á upplesturinn. Geir Haarde segir að það hafi ekki verið einfalt að bregðast við.
Geir Haarde brást þó við, hélt til dæmis ræðu á Viðskiptaþingi 13. febrúar 2008 (þá hefði upplesturinn átt að vera nokkuð ferskur í minni). Hann fullyrti þá að Moody´s telji fjárhagsstöðu bankanna góða. (Merkilegt í ljósi þess að fulltrúar þess fyrirtækis lýsa miklum áhyggjum af íslenskum bönkum á fundum með seðlabankafólki í þessum sama febrúarmánuði). Og Geir segir við okkur:
Þrátt fyrir þessar jákvæðu niðurstöður og greinargerðir fjármálaeftirlitsins, Moody´s, Credit Sights og fleiri aðila gætir enn neikvæðrar umfjöllunar hjá einstaka greiningaraðilum og fjölmiðlum. Þar er iðulega farið með hreinar staðreyndavillur og lýsingar á stöðu íslenska hagkerfisins eru mjög ýktar. Það er áhyggjuefni að þessir aðilar skuli ekki taka tillit til þeirra ítarlegu upplýsinga sem öllum eru aðgengilegar og lýsa sterkri stöðu bankanna og ríkissjóðs. Hér virðast önnur öfl ráða ferðinni en leitin að sannleikanum.Minnisblað Seðlabankans endar á skáldlegan hátt:
Ekkert bendir þó enn til þess og ef menn láta sér nægja að lifa í voninni verður of seint að bregðast við þegar ljóst verður að vonin rætist ekki.
21.3.09
Mannaþefur
18.3.09
Lenor
16.3.09
Vort daglega brauð
Brauð fyrst.
Þessari reglu var fylgt eftir á mínu bernskuheimili. Hún felur í sér að þegar bæði kökur og brauð eru á kaffiborði, á maður að fá sér brauð áður en maður fær sér köku. Nægilegt var að fá sér eina brauðsneið. Brauðin voru þessi: Franskbrauð, heilhveitibrauð, normalbrauð og maltbrauð. Ég get ekki gleymt því hvað mér þótti heilhveitibrauðið andstyggilega vont á bragðið, en því var mikið haldið á lofti hve hollt það væri. Þetta heilhveitibrauð sem þá var bakað var alveg óskylt þeim brauðum sem fást í bakaríum nútildags. Það var sívalt, ekki bakað í formi, dökkbrúnt, hart og seigt undir tönn, eins og það væri úr hefilspónum. Aveg sérstakt óbragð af því sem ég hef ekki fundið af öðru matarkyns. Normalbrauðið fannst mér gott, það var ákaflega háreist og skorpan svo hörð að næstum var útilokað að vinna á henni. Franskbrauðið var best, með smjöri og rabarabarasultu.
Þetta voru svokölluð vísitölubrauð. Bakarar áttu alltaf að hafa þessi brauð á boðstólum á tilteknu verði.
15.3.09
Fjórðungi til nafns
Ég er víst í viðskiptum við Nýja Kaupþing í dag og verð að viðurkenna að ég finn ekki fyrir minnstu tryggð í garð þess fyrirtækis. Merkilegt að enginn skuli hafa hringt og boðið mér að skipta um banka. Það eru kannski engir aðrir bankar.
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins er í bígerð að finna nýtt nafn á Nýja Kaupþing. Glitnir er búinn að breyta sér í Íslandsbanka. Lárus Welding er orðinn Snorrason á ný.
Fyrri nafnbreytingar bankans upplifði ég sem markaðstrikk, en nafnbreyting núna er af sama toga og þegar glæpamenn breyta um nafn þegar þeir hyggjast hefja nýtt líf. Ég spái því að viðskiptabanki minn muni verða vatni ausinn og nefndur Búnaðarbankinn. Auglýsingaherferð mun fylgja í kjölfarið.
Það er ofureinfalt að breyta um nafn; eitt eyðublað hjá þjóðskránni.
14.3.09
Leitin að eldinum
Það er greinilegt að hér er komið tilefni þess að dómsmálaráðherra lagði fram á Alþingi í fyrradag frumvarp til laga um breytingu á lögum um sérstakan saksóknara, þar sem tiltekið er að hann eigi að geta fengið allar upplýsingar sem hann óskar frá hinum ýmsu stofnunum ríkisins og fleiri aðilum sem upp eru taldir. Ég les á milli línanna að þessar stofnanir hafi ekki sýnt sérstaka saksóknaranum á spilin sín.
Mér finnst augljóst að það verði að sameina þá aðila sem eiga að rannsaka refsiverða háttsemi í tengslum vegna bankahrunsins og mynda sterka heild þar sem allir leggja saman. Það er flestum óskiljanlegt að búið hafi verið til sérstakt embætti, örembætti, til að rannsaka þessi mál, í stað þess að stórefla efnahagsbrotadeildina.
9.3.09
Painkiller
Það er búið að banna manni að kaupa Parkódín af því til er fólk sem misnotar það lyf. Einu sinni sem oftar var mér illt í bakinu og þá ákvað ég að kaupa Panodil. Mátti reyna það, byrjar hvortveggja á pé. Mér hafa alltaf líka alltaf þótt umbúðirnar utan um það frekar laglegar. Ekki var Panodilið mikilvirkt svo ég tók alltaf tvær í senn og lét ekki líða langt á milli. Ég sá á umbúðunum að það mætti taka 1-2 stykki, 1 til 4 sinnum á dag, þ.e. mest 8 stykki á dag og hugsaði með mér að auðvitað mætti taka aðeins meira en segði þar, það væri aldrei sagt frá því hvað væri raunverulegt hámark. Svona svipað og þegar stendur á matarumbúðum að eitthvað sé best fyrir tiltekinn dag, þá er yfirleitt allt í lagi að borða það nokkrum dögum seinna.
Þegar ég fór til læknis og nefndi þetta, þá sagði hann, og var alveg rólegur á meðan, að það væri hægt að deyja af minnir mig 12 stykkjum af Panodil á dag. Bara si svona. Ég spurði hvort hann væri að meina svona endanlegan dauða í eitt skipti fyrir öll og já, hann var einmitt að meina það. Mér brá aðeins við að hafa lent svona við dauðans dyr án þess að hafa vitað af því en get a.m.k staðfest að þessi skammtur eða jafnvel dálítið stærri, er ekki í öllum tilvikum banvænn.
Það hafa nú verið settar hauskúpur á varning af minna tilefni verð ég að segja.
7.3.09
Þúsund þorskar
Yfirleitt er verið að ferma nokkra tugi fermingarbarna í senn og til þess að athöfnin taki ekki marga klukkutíma er verða hlutirnir að ganga smurt. Flokkar fermingarbarna ganga viðstöðulaust og án tafa fyrir prestinn sem segir hraðmæltur mjög "viltuleitastviðaðfremstamegni aðhafajesúkrist aðleiðtogalífsþíns" og um leið og jáið kemur útúr barninu þá kemur bunan um að vera "trúralltildauða".
Það myndi ekki þýða að bjóða upp á svona skírnir eða giftingar svo mikið er víst.
6.3.09
Prinsessan sem átti 365 kjóla
Hvað segir það um Bretaveldi að þar skuli ekki finnast einn einasti brúðarkjóll samboðinn íslenskri snót sem er að fara gifta sig og það í annað sinn? Í anda gamla Íslands lætur hún ekki bugast og ráðgerir ferð til Rómaborgar til að leita að kjólnum eftir að Bretland hefur verið fínkembt, en sér sig um hönd á síðustu stundu og fer í staðinn til Flórída í kjólaleit, enda vill hún fá stóran og mikinn kjól. Hann hlýtur að vera til á Flórída.
Eftir því sem hér segir, ætlar Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur að gifta konuna þrátt fyrir að hún sé þegar í hjónabandi, en hún og maður hennar giftu sig í Hollandi. Það er samkvæmt hjúskaparlögum óheimilt að vígja mann sem er í hjúskap. Það á ekki síður við þó "hjónaefnin" séu gift hvort öðru. Slíka athöfn má með góðum vilja kalla blessunarathöfn en hjónavígsla er það ekki. Við skulum vona að frétt Vísis sé röng um þetta atriði og ekki verði framkvæmd "aukagifting" í Dómkirkjunni.
Það er ekker einsdæmi að konur vilji gifta sig í stórum kjólum. Hér er glæsilegt dæmi.
4.3.09
Ofurkraftur
Um daginn þegar ég ýtti á takkann á bíllyklinum, slokknaði umsvifalaust á öllum ljósastaurunum á bílastæðinu fyrir utan ræktina.
25.2.09
Bragð er að þá barnið finnur
24.2.09
Gullfoss í Hrunamannahreppi
Rétt er að halda því til haga að mér tókst að neita mér um ótalmargt sem mig langaði að kaupa, þar á meðal voru frosnar fiskibollur, mynd af Maríu mey með barnið og allnokkrir gullfallegir mokkabollar.
Í árbókinni segir:
Vissulega er betra að skoða Gullfoss vestan ár, en enginn þekkir þó Gullfoss, sem hefur ekki séð hann frá báðum hliðum. Landslagið neðan fossins þykir mér fegurra austan árinnar, og einnig nýtur gljúfrið sín betur úr þeirri átt.Ég hef alltaf farið út í Tungur til að skoða Gullfoss en auðvitað á það að vera metnaðarmál fyrir Hrunamenn að skoða hann frá sinni hlið.
23.2.09
Lög og regla
Það er varasamt að hafa lista yfir það sem er bannað of langa. Lesendur listanna gætu freistast til að beita á listana þeirri túlkun sem í lögfræði er kölluð gagnályktun. Í þessu tilviki myndi slík túlkun leiða til þess að talið væri heimilt að henda öllu í salernið sem ekki fyndist á listanum.
Hin klassíska regla „allt er bannað nema það sé sérstaklega leyft“ á hér betur við, enda er hægt að útbúa örstutta tæmandi talningu á því sem heimilt er að setja í klósett.
18.2.09
Computer says no
Villa: Óvæntar slóðarfæribreytur hafa komið upp og verða hunsaðar.
Engin eftirlæti hafa verið valin. Nota þarf hnappinn "Breyta eftirlætum" til að setja upp eftirlæti.
Þjóðin tjáir sig
Lagið í ár heitir í minni þýðingu Er þetta (virkilega) satt.
Is it true?
Is it over?
Did I throw it away?
17.2.09
Hrossakjötsnautn
Af óviðráðanlegum ástæðum get ég ekki vitnað hér í Mannfækkun af hallærum eftir Hannes Finnsson þó það væri viðeigandi. Þar er fjallað ítarlega um hrossakjötsát.
13.2.09
Sláturhús
Þetta var líka svona í sláturhúsinu í Laugarási í gamla daga. Fláningsmennirnir, unnu í akkorði og fengu greitt eftir afköstum, en þeir sem voru á eftir þeim á færibandinu, voru á tímakaupi. Ef maður setur sig í spor vinnuveitandans, þá er þetta ansi snjallt fyrirkomulag. Stundum spurðist út að morgni að fláningsmenn ætluðu sér að ná metafköstum þann daginn. Það var ekki vinsælt hjá tímavinnumönnum.
Einu sinni þáði ég læknishjálp á nefndum spítala. Ég man eftir að hafa verið beðin að skrifa undir yfirlýsingu því til staðfestingar að læknir hafi rætt við mig um fyrirhugaða læknisaðgerð, og að ég gerði mér grein fyrir mögulegri áhættu af henni. Ég hafði ekki haft tal að lækni á stofnuninni þegar þetta var, en ég þorði ekki annað en að skrifa undir af ótta við að læknisverkið lenti í uppnámi.
11.2.09
9.2.09
Vorvindar glaðir
7.2.09
Lækkert
At samle sine venner omkring et pænt kaffebord er nemt og hyggeligt.Þetta fer að mínu mati aðeins fram úr því að vera "pænt" og "nemt" en er vafalaust "hyggeligt" fyrir gestina.
5.2.09
Matarhola
"Já ég sé hér að þú vinnur á Landsspítalanum"
"Nei, ég er reyndar hætt þar"
"Þá eru þetta 11 þúsund krónur"
"Hvað hefði þetta verið er ég hefði ennþá unnið á spítalanum"?
"Þá hefðir þú fengið helmings afslátt"
2.2.09
Rúmfatalagerinn
Ekki er hægt að bera saman verðið á sæng fylltri gæsadúni og íslenskum æðardúni, sem fenginn er með sjálfbærri nýtingu náttúrugæða. Margt sem við kaupum á góðu verði, hefur verið dýru verði keypt fyrir aðra, jafnt menn sem málleysingja.
Það virðist vinsælt að pína gæsir í hagnaðarskyni, þeir sem hafa lyst á fois gras, treysta sér væntanlega til að horfa á þetta.
1.2.09
Frakkland - Króatía
Eitt augnablik eftir að skipt var yfir á handboltann hélt ég að "tæknin væri aðeins að stríða okkur" en svo rann hinn bitri raunveruleiki upp fyrir mér. Við svona uppákomur magnast upp efinn um að þessi ríkisrekni fjölmiðill sé peninganna virði.
Núna er staðan 18-18 í leiknum. Spennan er óbærileg. Fernandez er kominn inn á aftur hjá Frökkum.
27.1.09
Tími öskupokanna mun koma
Öskupokar geta einnig fengið rómantískt hlutverk. Þegar afi minn, Emil Ásgeirsson, var ungur maður á bændaskólanum á Hvanneyri, fann hann fagurlega bróderaðan öskupoka hangandi á bakinu á sér. Í honum leyndist bréfmiði með vísu:
Afbrýðisemin ergir mig
engan má það gruna.
Allar stúlkur elska þig
Emil minn frá Hruna.
Það hefur ekki verið upplýst enn þann dag í dag hver var þarna að verki. Engar stúlkur gengu í bændaskóla þá en einhverjar hafa verið þar við störf geri ég ráð fyrir. Hann átti reyndar kærustu þarna, dóttur skólastjórans.
Til að auka veg öskupokanna hefur mér dottið ýmislegt í hug. Á meðan góðærið geisaði datt mér í hug það þjóðráð að panta nokkur þúsund stykki frá Kínaveldi, en þar mun vera hægt að fá framleiddar gegn vægu gjaldi ýmsar nauðsynjavörur fyrir okkur vesturlandabúa. Núna hafa aðstæður breyst þannig að óskynsamlegt virðist að eyða dýrmætum gjaldeyri þjóðarinnar með þessum hætti. Ekki er um annað að ræða en að sauma öskupoka upp á gamla mátann og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Það kemur sér núna vel að hafa aldrei getað fengið sig til að henda efnisbút. Ég fullyrði að hér á heimilinu leynist hráefni í þúsundir öskupoka, þó auðvitað muni ég ekki geta saumað úr því öllu.
Leiðbeiningar um gerð öskupoka er að sjálfsögðu að finna á hinu undursamlega interneti.
23.1.09
Berjum niður verðið
Nýlega gerði ég mér ferð í Bónus gagngert til að kaupa rúðuvökva á bílinn. Taldi að þar hlyti hann að vera ódýrastur. Konan á eftir mér í röðinni mundi allt í einu eftir því að hana vantaði rúðuvökva þegar hún sá mig með brúsann. Meðan ég beið í röðinni hugsaði ég um hvað ég væri vitlaus að gera mér sérstaka ferð í Bónus útaf svona smáræði, sennilega til að spara hundraðkall.
Brúsi með 2,5 l kostaði eitthvað í kringum 330 kall. Í Húsasmiðjunni, hinumegin við götuna, sá ég skömmu síðar jafnstóran brúsa boðinn til sölu á krónur 1.399. Um leið og hneykslunarbylgja fór um mig alla varð ég svo glöð yfir að hafa farið í Bónus.
Til að allrar sanngirni sé gætt þá skal tekið fram að Húsasmiðjuvökvinn var með sítrónuilmi en Bónusvökvinn var með hefðbundinni rúðuvökvalykt.
14.1.09
Öskudagur og títuprjónar
Ég tel það ótvírætt að notkun öskupoka á Íslandi hafi fjarað út vegna óæskilegra breytinga á títuprjónum, eins og hér er haldið fram. Nauðsynlegt er að beygja títuprjón til að búa til öskupoka. Það er mikill skaði þegar tapast séríslenskir siðir eins og öskupokasiðurinn.
Legg ég nú til að allir sem saumnál geta valdið taki nú til við að sauma öskupoka til að nota á næsta öskudegi. Það er reglulega góð skemmtun að hengja þá á grunlausa. Líklega er hægt að nota pínulitlar gular nælur í staðinn fyrir títuprjóna.
Á öskudeginum komu sumir kennararnir í skólann í ullarpeysum. Aðrir komu í jökkum úr mjög þéttofnum efnum sem vonlaust var að stinga í gegnum.
4.1.09
Árið 2008
Mesta skömm ársins var þegar ég þurfti að fara þrjár ferðir eftir vegabréfi sonarins og missti stjórn á mér í afgreiðslu opinberrar stofnunar.
Vanræksla ársins var að þvo bílinn bara einu sinni.
Aumingjaskapur ársins var að fara ekki í löngu tímabært dómsmál við nágrannann útaf sitkagreninu sem gnæfir yfir lóðina mína.
Veikindi ársins voru þursabit.
Mesti viðbjóður ársins var franski kálfshausinn.
Dónaskap ársins í minn garð sýndi kassastelpan sendi sms um leið og hún skannaði nýlenduvörurnar sem ég var að kaupa.
Klaufalegast á árinu var þegar týnda yfirhöfnin mín reyndist hanga á snaga í fatahenginu.
Hræddust var ég á árinu sem leiðbeinandi í æfingaakstri.
Mesta leti ársins er að taka bilaða lyftu upp á 3. hæð.
Vonbrigði ársins voru að Reykjavíkurborg skyldi láta Vöku taka bifreið sonarins, þó hún stæði um stundarsakir númerslaus á hlaðinu.
Niðurlæging ársins var að fá ekki svar við margítrekuðu kvörtunarbréfi til Reykjavíkurborgar vegna ofangreinds atviks.
Hræðilegasta hljóð ársins heyrðist þegar maður skrapaði rúðugler með málmsköfu, hvar ég sat fyrir innan við fimmta mann.
Blóm ársins voru túlipanarnir sem blómstruðu fagurlega síðasta vor, þó ég hafi fengið versta þursabit ævinnar við að grafa þá niður.