Showing posts with label Hrossakjöt. Show all posts
Showing posts with label Hrossakjöt. Show all posts

17.2.09

Hrossakjötsnautn


Ég sannreyndi það um helgina, rétt eins og kom í ljós í könnuninni sem ég hef staðið fyrir hér á spássíunni, að Íslendingum finnst saltað hrossakjöt mikill öndvegismatur. Saltað hrossakjöt var á 30% afslætti í Bónus þannig að kílóið var einhversstaðar í kringum 500 kallinn. Það er því sannkallað kreppukjöt. Töluvert af fagurgulri fitu fylgir með enda er hún er ómissandi. Það er eftirtektarvert að hrossafita er alltaf mjúk. Það myndast ekki skjöldur ofan á pottinum þegar soðið kólnar,fitan er meira eins og olíulag. Hér segja vísindamenn að hrossafitan innihaldi töluvert minna af mettaðri fitu og meira af ein- og fjölómettuðum fitusýrum en lambafitan. Það væri þó óvarlegt af mér að lýsa því yfir hér að hrossafita væri holl fita. Ég veit þó dæmi þess að fólk hafi neytt óhemju magns af henni án þess að kenna sér meins. Þó ég hafi enga fyrirvara við að setja hrossafitu oní sjálfa mig, þá vefst fyrir mér hvar ég á að hella úr pottinum, hnausþykku fitulaginu sem flýtur þar ofan á soðinu, ég þori ekki að setja það í vaskinn né önnur niðurföll innandyra.

Af óviðráðanlegum ástæðum get ég ekki vitnað hér í Mannfækkun af hallærum eftir Hannes Finnsson þó það væri viðeigandi. Þar er fjallað ítarlega um hrossakjötsát.

29.12.08

Enn af kjöti

Ég minni á að frestur til að kjósa sér (mér) hrossaket hér til vinstri rennur út jafnhratt og árið 2008. Ráðgert er að hafa sigurkjötið í matinn hér á heimilinu fljótlega í janúarmánuði 2009.

17.10.08

Varnaðarorð

Þau gefast mörg tækifærin til að vitna í Hannes Finnsson Skálholtsbiskup þessa dagana. Hann var þess fullviss að íslenska þjóðin væri óvenjufljót að fjölga sér á ný eftir hallæri. Eiginlega skil ég ekkert í því að ráðamenn þjóðarinnar hafi ekki tilvitnaðir í hann á takteinum.

Ég opnaði áðan rit hans Mannfækkun af hallærum og við mér blasti á blaðsíðu 107 umfjöllun hans um tengsl óhóflegrar hrossakjötsnautnar og hungurdauða:
Það var segin saga, að hrossakjöts-ætur vóru þeir fyrstu sem á þessum hallæris-árum í harðrétti útaf dóu. Orsökin var augljós, að af því þessi nautn var almennilega álitin óheiðvirð, þóttust þeir, er hana brúkuðu, eigi skyldugir til, vóru eigi heldur svo vandir að breytni sinni, að þeir vildu brúka sómaaðferð og sparneytni í þessari matartekju, heldur a) átu sumir en sjálfdauðu og stundum úldin hræ, er horfallin voru aldrei matarhæf, síðst eptir að þau höfðu hálfdauð með blóði og gori legið eitt og annað dægur eða máske eigi allfá á víðavángi, þó vóru dæmi til, að slík væru etin. b) Tilbúningur, sem nærri má geta, var ekki ætið vandaður. c) Og það sem mest olli bana þeirra, er lögðu sér hrossakjöt sér til munns, óhófið, því þeir, sem í hrossakjötsát lögðust, gjörðu það flestir með græðgi, álítandi sér ekki ofgott eður sparandi, þar sem almenningur kallaði óæti, og því vóru sumir, sem annars höfðu fáa menn í heimili, er á vetri lögðu í búið 20, 30 og fleiri hófdýr, seldu þeir bæði fé, kýr og fisk fyrir ótemjur, sem þá fengust með góðu verði; af því óhófi hlauzt það, að þegar hrossin féllu og fengust eigi lengur, þoldu slíkar manneskjur húngur verr en aðrar, útstóðu meiri pínu og dóu fyrr. Eg efast því um, að hrossakjöt svo brúkað hafi viðhaldið nokkurs enn síður margra lífi.

12.10.08

Sparigrís

Ég mun á næstunni miðla fáeinum dýrmætum ábendingum um sparnað í almennu heimilishaldi.

Mikilvægt er að sneiða hjá lífrænt ræktuðum, vistvænum, fair trade matvælum. Of dýrt. Nú er það tilbúni áburðurinn, litarefnin, rotvarnarefnin og skordýraeitrið sem gildir. Ekki má gleyma erfðabreytta gúmmelaðinu.

Reyktar og saltaðar kjötvörur hafa ekki þótt smartar í útrásinni, ég spái því að nú verði breyting á. Fátt jafnast á við bjúgu með uppslubbi.

Einnig skal bent á að ódýrasta magafyllin fæst úr einföldum kolvetnum. Fáið ykkur nammi, pasta, hrísgrjón, kartöflur og hvítasykur.

29.7.08

Saltað hrossakjöt


Í þessum tveimur ferðum sem ég hef farið á Vestfirði, sunnanverða, hef ég ekki séð einn einasta hest. Um helgina var ég á Tálknafirði og hélt um stund að skýringin væri fundin. Þar fyrir utan hvert hús voru saltkjötstunnur og mér datt í hug að Tálknfirðingar hefðu saltað öll vestfirsk hross oní tunnur sínar.

Svo reyndist ekki vera. Á Tálknafirði eru menn komnir á æðra stig í flokkun sorps en að ég taldi að þekktist á Íslandi. Tálknfirðingar setja lífrænt sorp í þessar tunnur, sem sveitarfélagið sér um losun á. Úr þessu verður molta. Svona hefur þetta víst verið í áraraðir eftir því sem mínir heimildarmenn segja.

Hvenær skyldi þetta þykja mögulegt í henni Reykjavík.

Hagstofan segir að það séu tæplega 900 hross á Vestfjörðum. Sama heimild segir að þar sé ekki eitt einasta svín.

6.7.08

Eyrún með svörtu eyrun


Íslenski hesturinn er þrautseig skepna og hann er merkilega léttur, að meðaltali aðeins 400 kíló að þyngd. Það þýðir að ef knapi og hnakkur eru samtals 100 kíló, og þeir eru örugglega margir þyngri, nemur það 1/4 af þyngd hestsins. Ég myndi ekki vilja hlaupa með [...] kíló á bakinu. Auðvitað segi ég ekki hve mörg kíló ég myndi ekki vilja hlaupa með.

Það er liðin tíð að hestar hétu Faxi, Skjóni, Þokki, svona hefðbundnum sveitalegum hestanöfnum. Nú heita þeir smart nöfnum: Aladín, Helmingur, Dósent, Gídeon, Tíska, Dýnus, Firra, Rólex, Losti (ekki stóðhestur), Ískristall, Tývar. Það virðist engin hestanafnanefnd starfandi. Rannsóknarefni hvort sambærileg þróun hafi orðið á hestanöfnum og mannanöfnum.

Vinsælt er að gefa hrossunum mannsnafn, myndin er af henni Eyrúnu frá Velli. Svona lit hef ég aldrei séð, ætli megi segja að hún sé svarteyrð. Mér finnst ekkert fyndið að kalla hana Eyrúnu.