25.12.08
Af kjöti
Af þessu tilefni rann upp fyrir mér að orðið lambalæri er ekki eins gegnsætt og ætla mætti í fyrstu. Bróðurparturinn af lambalæri er í raun rassinn á skepnunni. Lambsrass. Segja má að orðið lambalæri flokkist undir skrauthvörf.
29.10.08
Orða frjósöm móðir
8.10.08
Nýtilegir málshættir
Þeim verður að svíða sem undir míga.
Það kostar klof að ríða röftum.
Grísir gjalda, gömul svín valda.
31.8.08
The turf-killer
Þúfnabaninn er alveg magnað monster. Hann er á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri í skýli sem er bara örlítið stærra en hann sjálfur þannig að mikilfengleiki hans nýtur sín ekki til fulls. Þúfnabaninn myndi hiklaust sóma sér vel sem sýningargripur á hvaða tækniminjasafni sem er. Hann er svona ruddaleg týpa og óhjákvæmilegt að segja vá þegar maður lítur hann augum.Búvélaverksmiðjur Heinrich Lanz í Mannheim í Þýskalandi (Landbaumotor Lanz) smíðuðu þúfnabanann. Fyrirtækið var stofnað 1859 og var til í hundrað ár þar til það var yfirtekið af John Deere. Hér er vefsíða aðdáanda Lanz með ótal myndum af tækjum framleiddum hjá verksmiðjunum, þar eru líka hljóðskrár, þar sem hægt er að heyra vélarnar mala og hósta.
Lanz er liðinn undir lok, þúfnabaninn bugaður af elli og nú er umsjónarmaður vefjarins látinn og auglýst er eftir manni til að taka við starfinu. Ideal hobby for a retiree eins og þar segir. Það þýðir sennilega ekki að senda inn mynd af þúfnabananum á meðan vefstjórinn er dauður.
Aðeins þeir allra frægustu komast á frímerki, þúfnabaninn komst í þann hóp í vor. Hann var af því tilefni þýddur á ensku og heitir á því máli turf-killer. Hm.
12.8.08
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Ég ákvað að byrja á því að taka áhættu, leita óskipulega og treysta því að mín oftsinnissannaða hundaheppni myndi leiða mig á réttu blaðsíðuna, en það gerðist ekki. Lengi hélt ég þó í vonina. Seint og um síðir neyddist ég til að afskrifa þann tíma sem í þetta hafði farið og hóf leit með öruggari aðferð, tilbrigði við bandprjónsaðferðina. Nú fletti ég blaðsíðum ritsafnsins, einni í senn, í áframhaldandi töluröð. Það sem ég taldi að yrði spretthlaup, reyndist langhlaup. (Þessi setning er hér í tilefni af Ólympíuleikunum).
Aðferðin er seinleg en fjarri því að vera leiðinleg því þjóðsögurnar eru svo makalaust skemmtilegar að það er of gott til að vera satt. Í gær hló ég upphátt að sögu sem er svo dónaleg að hún fæst ekki birt á Smjerpinkli. Hvernig skyldu þær hafa verið sögurnar sem Jón ákvað að væru ekki birtingarhæfar? Kistillinn hans þyrfti að finnast.
29.7.08
Dýr orð
Samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála í héraði skal sá sem tapar máli í öllu verulegu skal að jafnaði dæmdur til að greiða gagnaðila sínum málskostnað. Í 3. mgr. sömu greinar segir: "Nú vinnur aðili mál að nokkru og tapar því að nokkru eða veruleg vafaatriði eru í máli, og má þá dæma annan aðilann til að greiða hluta málskostnaðar hins eða láta hvorn þeirra bera sinn kostnað af málinu."
Dómarinn ákvað að hvor aðili þessa máls ætti að greiða sinn kostnað en með því er hann að segja að "veruleg vafaatriði" hafi verið í málinu.
Hér talar dómarinn:
"Ekki er dregið í efa að málið hafi haft fréttagildi og því eðlilegt að um það væri fjallað í fjölmiðlum. Hins vegar er fallist á að ekki hafi verið vandað nægilega til undirbúnings umfjöllunar um málið í upphafi og gætt hafi ónákvæmni og að sumu leyti ekki farið rétt með staðreyndir um málsmeðferð varðandi umsóknir um ríkisfang. Leiðréttingar áttu sér stað er á umfjöllunina leið og verður ekki talið að umfjöllunin að þessu leyti hafi falið í sér ólögmæta meingerð gegn æru og persónu stefnenda."
"Af gögnum máls verður ekki ráðið að afgreiðsla umsóknar stefnanda Luciu um íslenskan ríkisborgararétt hafi verið önnur en almennt gerist, eins og gefið var í skyn í upphaflegri umfjöllun Kastljóss um málið. Það breytir því þó ekki að réttlætanlegt tilefni var til þess að fjalla um málið sem varðaði meðferð og afgreiðslu allsherjarnefndar á veitingu ríkisborgararéttar, eins og fyrr greinir. "
Það verður ekki séð af lestri niðurstöðunnar í heild sinni að dómarinn hafi velkst í miklum vafa, hann segir þó að ónákvæmni hafi gætt í fyrstu umfjöllun Kastljóssins af málinu, sem leiðrétt var á síðari stigum og að gefið hafi verið í skyn í upphaflegri umfjöllun Kastljóssins að meðferð umsóknar stefnanda hafi verið önnur en annarra umsókna um ríkisborgararétt, en það verði ekki ráðið af gögnum málsins.
Samkvæmt þessu verður ónákvæmni í upphafi fréttaflutnings af málinu til þess að hinir sýknuðu þurfa að borga málskostnað sinn. Það er dýr ónákvæmni. Krafan virðist vera sú að fréttamenn séu óskeikulir. Málinu er þó ekki lokið, í frétt RÚV er haft eftir "verjanda" (ónákvæmi hjá RÚV) parsins að dómnum verði áfrýjað.
25.7.08
Óorð
Merkilegt að brúðkaup hafi ekki lent í hreinsunareldinum, það vísar til kaupsamnings um kvenmann.
Lýtaaðgerðir hafa verið gerðar hjá hinu opinbera. Orðið stofnun er óttalega stofnanalegt og neikvæðar tilfinningar hellast yfir þann sem það notar. Félagsmálastofnun verður Félagsþjónustan sem verður Þjónustumiðstöð. Stofnun er þó skömminni til skárri en eftirlit, þar er stóri bróðir örugglega fastráðinn. Útlendingaeftirlit verður Útlendingastofnun. Heimilislegast er þegar nafnið endar á stofa. Þar hlýtur fólki að líða vel. Neytendastofa.
Um daginn sá ég á prenti orðið veigrunarorð. Eru það skrauthvörf yfir skrauthvörf?
Það er eftirspurn eftir nýjum og fallegum veigrunarorðum: Sífellt fleiri gæludýr glíma við kjörþyngdarröskun.
16.7.08
10.7.08
Nöfn með rentu
Sigurjón Bláfeld er sérfræðingur í loðdýrarækt.

