Ég er með aldrinum orðin mjög dugleg að horfa á ógeðslegar bíómyndir. Bregð mér hvorki við sár né bana söguhetjanna. Það var ekki alltaf svo. Þegar ég var yngri var gert grín að mér þegar ég hélt fyrir augu og eyru heilu kvikmyndirnar sem ég hafði þó borgað mig inn á fullu verði. Sérstaklega fannst mér ógeðslegt þegar var verið að pína fólk viljandi.
Þegar ég fór í fyrsta sinn á bíómynd í Flúðabíói sem var bönnuð innan 16 ára þá gekk ég út af henni. Sjálfsagt hef ég verið eitthvað yngri en 16. Ég man vel hvað var svona hræðilegt. Maður og kona voru um borð í bát, þau voru bundin við eitthvað tréverk og að þeim steðjaði mikil ógn. Lítil vélmenni sem litu út eins og dúkkur, gengu skrykkjóttum skrefum í áttina til þeirra og gerðu sig líkleg til að éta þau lifandi. Þessar mannætumorðdúkkur voru með hákarlstennur úr glampandi stáli og skelltu þeim saman ótt og títt. Ég gat ekki hugsað mér að horfa á þetta fólk étið lifandi svo þjáningafullt sem það hlaut að verða, þannig að ég ákvað að forða mér og sagðist þurfa að pissa. Ekki veit ég hvaða kvikmynd þetta var.
Flúðabíó var landsbyggðarbíó sem sýndi heimsfrægar stórmyndir í Félagsheimili Hrunamanna einu sinni í viku, á fimmtudögum, sjónvarpslausum dögum.
Showing posts with label Morð. Show all posts
Showing posts with label Morð. Show all posts
19.11.08
5.9.08
Drápssniglarnir koma
Mér er sem garðeiganda alveg sérlega uppsigað við Spánarsnigla, eins og áður hefur komið fram. Þau válegu tíðindi eru í Fréttablaðinu í dag að þeir séu orðnir útbreiddir um allt landið og miðin. Hinn vaski skordýrafræðingur Erling Ólafsson mælir með því að sniglarnir séu handsamaðir hvar sem þeir hittast fyrir og framseldir Náttúrufræðistofnun Íslands. Sé framsal umhendis, skulu þeir teknir af lífi án dóms og laga.Ég geri ráð fyrir að sniglanna bíði herfileg örlög í höndum Erlings og félaga hans á Náttúrufræðistofnun þó vart í líkingu við það sem lýst er hér í hrollvekjandi spjallþræði, sem glöggur lesandi sendi mér um daginn og ég tel rétt að vekja athygli á. Þetta eru leiðbeiningar óbreyttra garðeigenda í Danmörku um hvernig best sé að kvelja tóruna úr Spánarsniglum. Danir hafa reyndar gefið þeim gildishlaðið heiti, dræbersnegle, á sínu gullfallega tungumáli.
Sniglarnir virðast Dönum mjög hugleiknir og fjölmörg þarlend vefsetur (snegleblogs) eru alfarið helguð baráttunni gegn þeim. Hér er eitt slíkt, þar er mikið snegleinfo, og fjallað um sneglefjendsk havedesign, sneglesikre planter, aktiv dødshjelp (með mynd) og passiv dødshjelp. Einnig er boðið upp á smellinn netleik þar sem tækifæri gefst til að drepa Spánarsnigla online.
31.7.08
Aftakaveður á Þingvöllum
Ég las í litlu kveri eftir Pál Sigurðsson um aftökustaði í Landnámi Ingólfs, að áreiðanlegar heimildir væru fyrir 72 aftökum á Þingvöllum.
Labels:
Bækur,
Dauði,
Lög,
Morð,
Þingvellir
22.7.08
Skrímsli á Íslandi
Hvernig drepur maður Spánarsnigil? Því hefur ekki verið svarað. Það er sennilega svipað því að stíga ofan á banana að ætla að trampa hann í hel. Ætli verði ekki að skjóta hann.Spánarsnigillinn á baksíðu Moggans í dag er meira en 10 cm langur og eftir því gildur. Aumingjagæska mín er alltumfaðmandi, en nær ekki til Spánarsnigla. Þeir munu ekki kemba hærurnar í mínum garði.
Labels:
Dýraplagerí,
Einelti,
Fordómar,
Húsráð,
Morð,
Sniglaveisla
21.7.08
Sókrates og óðjurtin

Horfði á þáttinn um Aþenu áðan á ríkinu. Þeir drápu Sókrates með seyði af óðjurt, sem svo er nefnd uppá íslensku. Eitrið veldur vöðvalömun.
Jurtin er af sveipjurtaætt rétt eins og hinn armi skógarkerfill sem veður uppi hérlendis, enda má sjá af myndinni af hún er nauðalík kerflinum. Einnig er hún skyld dilli, gulrótum, steinselju, fennel, koriander, kúmeni, hvönn og fleiri plöntum sem eiga það sameiginlegt að blómin mynda sveip.
7.7.08
Flagð undir fögru skinni

Mér finnst það næstum alltaf mikil ánægja og heiður þegar blóm sá sér sjálf í garðinn, ég er með fullt af þannig gestum eða hælisleitendum hjá mér, sumt eru viðurkenndar garðjurtir annað má frekar kalla illgresi. Það er engin ástæða til að vera með ofstjórn í garðræktinni, það er sjálfsagt að viðhafa þar ákveðið íbúalýðræði. Þannig verður garðvinnan þægilegust. Stjórnlyndi og forsjárhyggja á illa við í garðrækt eins og þeirri sem ég stunda.
Myndin er af miklu eftirlætisblómi hjá mér, það heitir fingurbjargarblóm og á latínu digitalis purpurea. Digitus mun þýða fingur á latínu. Þetta er frábærlega falleg tvíær jurt sem blómstrar á seinna árinu. Viðheldur sér og gott betur en það með sáningu án þess að ég þurfi mikið að skipta mér af því. Þó hún sé há í loftinu, þarf ekki að binda hana upp hér í logninu í Vogahverfi. Sem er ágætt því mér leiðist að binda prik við garðplöntur, þær sem ekki hanga uppi að eigin rammleik verða bara að liggja. Ég fékk eina eða tvær smáplöntur hjá nágrannakonu minni fyrir nokkrum árum og síðan hefur þessi planta unnið að því að leggja minn garð undir sig og ég kvarta ekki. Býflugur eru afar hrifnar af þessari plöntu, eins er um Breta, þeir kalla hana foxglove.
En enginn er algóður. Plantan er baneitruð, úr henni hefur verið unnið hjartalyfið digitalis í 200 ár eða svo. Ég man eftir að hafa sé eina breska morðgátumynd, með Barnaby eða einhverjum svipuðum starfsbróður hans, þar sem í ljós kom að kerlingarflagð eitt hafði byrlað mönnum eitur sem hún bruggaði úr fingurbjargarblómi sem óx í hennar skrúðgarði og það fór ekki framhjá hinum glögga verði réttvísinnar.
Fingurbjargarblómin mín munu í haust framleiða ókjörin öll af fræi, sem velkomið er að sníkja af mér.

Subscribe to:
Posts (Atom)